Viðkomandi starfsmaður kemur til með að taka þátt í þverfaglegu samstarfi og teymisvinnu innan sviðsins. Meginhluti starfsins fer fram á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Hraunbúðum. Spennandi verkefni eru framundan í öldrunarþjónustunni með opnun nýrrar deildar við Hraunbúðir og uppbyggingu á opinni öldrunarþjónustu hjá Vestmannaeyjabæ.
Umsóknarfrestur er til 15. desember en ráðið er í starfið frá 2. janúar næstkomandi eða eftir samkomulagi.
Laun samkvæmt kjarasamningi sambands íslenskra sveitarfélaga við Iðjuþjálfafélag Íslands
Gerð er krafa um íslenskt starfsleyfi sem iðjuþjálfi, góða samskiptahæfni, sveigjanleika og metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð og jákvæðni.
Umsókn ásamt greinargerð um hæfi til starfsins óskast send á Sólrúnu Gunnarsdóttur deildarstjóra í öldrunarmálum solrun@vestmannaeyjar.is eða Jón Pétursson framkvæmdarstjóra Fjölskyldu- og fræðslusviðs Vestmannaeyjabæjar á jonp@vestmannaeyjar.is. Nánari upplýsingar fást hjá ofangreindum aðilum í síma 488 2602 eða 488 2000.