Fara í efni
25.02.2026 Auglýsingar

Langar þig að gerast dagforeldri?

Vestmannaeyjabær auglýsir eftir áhugasömum og hæfum aðila til að gerast dagforeldri.

Deildu

Dagforeldrar gegna mikilvægu hlutverki í umönnun og uppeldi ungra barna og skapa öruggt og hlýlegt umhverfi þar sem börn fá að þroskast og dafna.  

Til að gerast dagforeldri þarf viðkomandi að geta veitt börnunum góða umönnun, öryggi og hlýju ásamt því að sækja námskeið fyrir dagforeldra.  

Dagforeldrar eru sjálfstæðir verktakar en skólaskrifstofa hefur umsjón og eftirlit með starfsemi þeirra og ráðgjöf við dagforeldra og foreldra. Allir sem fá starfsleyfi til daggæslu í heimahúsum þurfa að uppfylla skilyrði sbr. reglugerð nr. 907/2005 um daggæslu í heimahúsum frá maí 2002. 

Vestmannaeyjabær veitir dagforeldrum starfsleyfi og sinnir ráðgjöf og eftirliti með þeim. Dagforeldrar eru með eigin gjaldskrá og greiðir Vestmannaeyjabær niður daggæslu skv. ákveðnum reglum. Stutt verður við einstaklinga við að koma sér upp aðstöðu gerist þess þörf samkvæmt reglum sveitarfélagsins.  

Frekari upplýsingar um störf dagforeldra og skilyrði fyrir leyfisveitingum veitir Helga Sigrún Í. Þórsdóttir, deildarstjóri fræðslu- og uppeldismála í síma 488-2000 eða í tölvupósti: helgasigrun@vestmannaeyjar.is