Fara í efni
30.04.2026 Fréttir

Kynning á menningarstefnu Vestmannaeyjabæjar 1. maí

Menningarstefna Vestmannaeyjabæjar verður kynnt á morgun, 1. maí, kl. 11:00 í Eldheimum.

Deildu

Undanfarna mánuði hefur markvisst verið unnið að mótun menningarstefnu fyrir Vestmannaeyjabæ. Í því þeirri vinnu voru meðal annars vinnustofur með fjölbreyttum hópi þátttakenda þar sem kallað var eftir hugmyndum, sýn og áherslum varðandi menningu sveitarfélagsins.

Á kynningunni verður farið yfir helstu áherslur stefnunnar og næstu skref í framhaldi af vinnunni. Allir áhugasamir eru hvattir til að mæta og kynna sér stefnuna.