Þróunarverkefni á sviði svæðisbundinnar matargerðar
Tilgangur verkefnisins er að styrkja þróun í svæðisbundinni matargerð og efla ferðaþjónustu með því að framleiða og selja matvörur sem byggja á hráefni, sögu og þekkingu á ákveðnum svæðum. Ennfremur er markmiðið að auka samstarf milli fyrirtækja í ferðaþjónustu og lítilla fyrirtækja sem framleiða matvörur og auðvelda þeim sameiginlega markaðssetningu á svæðinu. Þeir, sem taka þátt í verkefninu taka þátt í fræðslu um í þróun, vinnslu og meðferð matvæla og fá auk þess fjárhagslegan og faglegan stuðning við þróun á nýjum afurðum. Með verkefninu er verið að auka þekkingu á gæðum og faglegri vinnu við þróun nýjum matvörum.
Markmið
Að auka framboð á matvörum sem hafa sterka skírskotun til svæðis eða sögu og menningar á viðkomandi svæði.
Að koma nýrri vöru á markað.
Að vinna að faglegum úrlausnum við þróun á viðkomandi vöru.
Að verkefnin skili fyrirtækjunum það miklum ávinningi að kostnaðurinn við vöruþróunina skili sér til baka innan 2 - 3 ára frá því að sala hefst.
Að auka þekkingu á þróun, framleiðslu og markaðssetningu.
Að auka og efla samstarf milli fyrirtækja í ferðaþjónustu og maltvælaframleiðslu.
Framkvæmd
Verkefnið hefst með 2 daga námskeiði þar sem þátttakendur fá fræðslu um þróun, vinnslu, meðferð og öryggi matvæla. Kennt verður í janúar 2009 á 3-4 stöðum á landinu, en staðirnir verða valdir með hliðsjón af búsetu þátttakenda. Kennarar koma frá Matís, Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra og Hólaskóla Háskólanum á Hólum. Að námskeiðinu loknu hefst hin eiginlega þróunarvinna þar sem þátttakendur munu vinna að sínum verkefnum með aðstoð frá Impru auk sérfræðinga á tilteknum sviðum. Þjónusta Impru á Nýsköpunarmiðstöð er án endurgjalds, en styrknum er ætlað að standa undir hluta af öðrum kostnaði, t.d. ráðgjöf sérfræðinga, prófunum, mælingum eða öðrum þáttum við þróunina.
Forsendur
Forsendur þess að verkefni geti fengið stuðning eru m.a. eftirfarandi:
Einhver nýung, þróun eða nýbreytni frá þeim vörum sem eru í boði í dag
Tenging við ferðaþjónustu á svæðinu
Sala sé líkleg til að skila þróunarkostnaði til baka á innan við 2-3 árum
Verkefnið raski ekki samkeppni á viðkomandi svæði
Umsóknarfrestur er til og með 12. janúar 2009
Umsóknareyðublað
Í umsóknum þurfa að koma fram upplýsingar um umsækjendur og verkefnishugmyndir þeirra, nýnæmi, tengsl við ferðaþjónustu og markað.
Nánari upplýsingar veitir Sigurður Steingrímsson, verkefnisstjóri í s: 460 7972. sigurdurs@nmi.is