Í úrskurðinum var kröfu kærenda um að útboðsskilmálar yrðu felldir úr gildi hafnað, þar sem bindandi samningur hafði þegar verið gerður.
Kærunefndin tók ekki efnislega afstöðu til lögmætis þeirra skilmála sem kærðir voru.
Við undirbúning útboðsins var lögð áhersla á að hæfiskröfur og valforsendur endurspegluðu umfang verkefnisins, fjárfestingarþörf og kröfur um traustan rekstur til lengri tíma.
Markmiðið var að tryggja að rekstraraðili hefði fjárhagslega, rekstrarlega og tæknilega burði til að byggja upp og reka heilsuræktaraðstöðuna með þeim gæðum sem íbúar og gestir Vestmannaeyja eiga rétt á að búast við. Jafnframt var horft til þess að þjónustan myndi nýtast sem best, meðal annars með aðgangi að heilsuræktarstöðvum annars staðar á landinu.
Bæjarráð fagnar því að niðurstaða liggi nú fyrir og ítrekar mikilvægi verkefnisins fyrir lýðheilsu og þjónustu við íbúa Vestmannaeyja. Uppbygging nýrrar heilsuræktaraðstöðu við Íþróttamiðstöðina er mikilvægur liður í áframhaldandi þróun íþrótta- og heilsueflingar í bænum.
Eyþór Harðarson formaður bæjarráðs segir það ánægjulegt að niðurstaða er komin í málið og það sé tilhlökkun í því að sjá Íþróttamiðstöðina verða enn meira aðdráttarafl fyrir bæjarbúa á næstu árum.
Það er von mín og trú að öflug Íþróttamiðstöð muni efla góðan bæjarbrag.