Fara í efni
21.06.2005 Fréttir

Jónsmessumiðnæturganga og sund

Fimmtudaginn 23. júní kl. 22.00 verður Jónsmessumiðnæturganga í boði menningar - og tómstundaráðs Vestmannaeyjabæjar. Gengið verður frá Íþróttahúsinu upp á Helgafell og til baka að Íþróttahúsinu. Sundlau
Deildu

Fimmtudaginn 23. júní kl. 22.00 verður Jónsmessumiðnæturganga í boði menningar - og tómstundaráðs Vestmannaeyjabæjar. Gengið verður frá Íþróttahúsinu upp á Helgafell og til baka að Íþróttahúsinu.

Sundlaugin verður opin til kl. 01.00 eftir miðnætti. Hefðbundinn aðgangseyrir í sundlaugina. Leiðsögumaður verður Magnús Þorsteinsson björgunarsveitarmaður.

Menningar- og tómstundaráð Vestmannaeyja