Fara í efni
11.11.2021 Fréttir

Jóna Björg Guðmundsdóttir heiðursfélagi í Félagi héraðsskjalavarða á Íslandi

Jóna Björg Guðmundsdóttir lét af störfum í Safnahúsi Vestmannaeyja síðastliðið sumar, eftir að hafa starfað þar óslitið í 32 ár sem héraðsskjalavörður.

Deildu

Jóna lauk námi í Bókasafns- og upplýsingafræði árið 1989 og var þá ráðin á bókasafn Vestmannaeyja. Sama ár var hún ráðin sem héraðsskjalavörður við Héraðsskjalasafn Vestmannaeyja. Nú í haust var hún gerð að heiðursfélaga í Félagi héraðskjalavarða á Íslandi.

Við ósum Jónu Björgu innilega til hamingju með heiðurinn og þökkum henni vel unnin störf fyrir Vestmannaeyjabæ.