Íþróttavika Evrópu stendur yfir þessa dagana og af því tilefni verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá í Vestmannaeyjum.
Markmið Íþróttaviku Evrópu er að hvetja fólk á öllum aldri til að hreyfa sig og finna sér hreyfingu sem hentar. Í vikunni gefst því frábært tækifæri til að prófa eitthvað nýtt, taka þátt í opnum æfingum eða einfaldlega njóta hreyfingar með fjölskyldu og vinum.
Á dagskránni má meðal annars finna Metabolic, CrossFit, fimleika, sund, fótbolta, jóga, hlaup, badminton, golf, pílu og ævintýragöngu fyrir alla fjölskylduna. Þá verður einnig boðið upp á fræðslu og ýmsa viðburði fyrir bæði börn og fullorðna.
Hvort sem þú ert vanur að hreyfa þig eða langar að koma þér af stað er því eitthvað fyrir þig!
Skoðaðu dagskrána hér að neðan og finndu þér eitthvað skemmtilegt að taka þátt í. Við hvetjum alla til að nýta tækifærið, prófa eitthvað nýtt og hafa gaman af hreyfingunni!

Miðvikudagur 23.september
06:15 Metabolic
10:00 Metabolic
12:05 Opin CrossFit æfing í Prentsmiðjunni
14:15 - 15:15 Fimleikar 1.bekkur
14:15 - 15:15 Fimleikar 2.bekkur
15:15 - 16:15 Sund 6.bekkur og eldri
15:30 - 16:45 Fimleikar 3.bekkur
15:30 - 17:15 Fimleikar 4.-5.bekkur
16:00 - 17:30 Sund 8.bekkur og eldri
16:30 Opin æfing með meistaraflokk karla í fótbolta
17:00 - 19:00 Fimleikar 6.-7.bekkur
17:00 - 19:00 Fimleikar 8.-10.bekkur
17:30 - 18:15 Sundleikfimi
17:30 Metabolic
19:30 Fyrirlesturinn: Hvað ef eitt lítið skref gæti haft stór áhrif?

Fimmtudagur 24.september
06:15 Metabolic
15:15 - 16:00 Fimleikar 4-5 ára
15:15 - 16:00 Sund 1.-2.bekkur
15:30 - 17:00 Fimleikar 4.-5.bekkur
16:00 - 16:45 Sund 3.-5.bekkur
16:15 - 17:00 Fimleikar 4-5 ára
16:45 - 18:15 Sund 8.bekkur og eldri
17:15 - 18:15 Fimleikar 6.-7.bekkur
17:15 - 19:15 Fimleikar 8.-10.bekkur
17:15 Jóga í Magnahúsi
17:15 Hlaup hjá Eyjaskokk
19:30 Badminton
Föstudagur 25.september
06:15 Metabolic
12:00 Metabolic
13:00 - 14:30 Fimleikar 3.bekkur
15:00 - 15:45 Sund 3.-5.bekkur
15:45 - 16:45 Sund 6.bekkur og eldri
16:00 - 18:00 Opinn golftími með Jón Valgarð Gústafsson PGA golfkennara
16:00 Opinn fundur og æfing með meistaraflokk kvenna í fótbolta

Laugardagur 26.september
09:30 - 10:00 Íþróttaskóli 2025
10:15 - 11:00 Íþróttaskóli 2024
11:15 - 12:00 Íþróttaskóli 2023
10:00 Metabolic
10:00 - 12:00 Tómstundahlaðborð
16:00 - 17:00 Píla fyrir U-18
Sunnudagur 27.september
Ævintýraganga fyrir fjölskylduna
Frípassar og skráningar hér fyrir neðan!



