Fara í efni
05.09.2005 Fréttir

Íþróttasjóður - framlög

Úr Íþróttasjóði, sem starfar samkvæmt íþróttalögum nr. 64/1998, sbr. reglugerð
Deildu

Úr Íþróttasjóði, sem starfar samkvæmt íþróttalögum nr. 64/1998, sbr. reglugerð nr. 188/1999 og reglugerð nr. 388/2001 um breyting á þeirri reglugerð, má veita framlög til eftirfarandi verkefna á sviði íþrótta:

  1. Sérstakra verkefna á vegum íþróttafélaga og samtaka þeirra sem miða að því að bæta aðstöðu til íþróttaiðkana
  2. Útbreiðslu- og fræðsluverkefna
  3. Íþróttarannsókna
  4. Verkefna samkvæmt 13. gr. íþróttalaga.

Umsóknir um stuðning úr Íþróttasjóði vegna ársins 2005 skulu berast Íþróttanefnd, menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, á þar til gerðum eyðublöðum, í síðasta lagi 1. október 2005. Reglugerð sjóðsins og eyðublöð fást í afgreiðslu menntamálaráðuneytisins og á vef þess, menntamalaraduneyti.is.

Af vef mrn.

Fræðslu og menningarsvið Vestmannaeyja