Fara í efni
10.03.2026 Fréttir

Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja – Klefabygging

Vestmannaeyjabær óskar eftir tilboðum í verkið ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐ VESTMANNAEYJA-KLEFABYGGING.
Verkið skal framkvæma í samræmi við útboðsgögn.

Deildu

Um er að ræða tveggja hæða steinsteypta viðbyggingu við Íþróttamiðstöðina Vestmannaeyjum með léttbyggðu þaki. Á fyrstu hæð verði fullfrágengnir búningsklefar og annarri hæð skal skila fokheldri. Öll viðbyggingin skal kláruð að utan. Samtals stærð viðbyggingar báðar hæðir er alls 1990 m2.
Grafið hefur verið fyrir húsinu og fyllt upp undir undirstöður og þannig tekur verktaki við þjappaðri fyllingu.

Steyptir útveggir hússins verða einangraðir og klæddir að utan og múrhúðaðir að innan. Þakið verður létt þak borið uppi af límtrésbitum klætt steinullar einingum með heilsoðnum þakpappa, lektum og álklæðningu. Allar útihurðir og gluggar eru úr áli. Að innan verða öll blautrými flísalögð, niðurtekin loft og lagnarými þar fyrir ofan. Á 1. hæð verður gólfhiti og ofnar í anddyri. Í tæknirými á 2. hæð verður loftræstisamstæða. Verklok 1. Maí 2028.

Helstu magntölur eru um það bil:
Steinsteypa 1500 m3
Steypumót 10.000 m2
Bendistál 88 tonn
Útveggjaklæðning 420 m2
Þakflötur 950 m2

Útboðsgögn verða afhent á útboðsvef sem er aðgengilegur hér

Tilboðum skal skila rafrænt í útboðskerfinu Ajour. Tilboð skulu sett fram með þeim hætti sem sett er fram í útboðskerfinu og í samræmi við skilmála útboðs og hlaða upp þeim skrám sem gerð er krafa um. Bjóðandi fær staðfestingarpóst þegar hann hefur skilað tilboði. Ef enginn póstur berst, hefur afhending ekki tekist. Bjóðendur skulu í þeim tilfellum leita til Ajour þjónustuaðila án tafar. Bjóðandi ber abyrgð á að tilboð berist á réttum tíma og eru hvattir til að hefja timanlega vinnu við sð skila þeim inn. Bjóðandi ber ábyrgð á að tilboð berist á réttum tíma.

Skilafrestur tilboðs er til kl. 14:00 þríðjudaginn 14. april 2026. Útboðsgögn er hægt að nálgast á útboðsvef frá og með mánudeginum 9. Mars

Opnun tilboða verður framkvæmd með rafrænum hætti á útboðsvefnum eftir að skilafrestur tilboða er liðinn. Bjóðendum verður því ekki boðið að mæta á opnunarfund en í kjölfar opnunar tilboða veður bjóðendum sent opnunaryfirlit rafrænt.

Hlekk á auglýsinguna er að finna hér.