Fara í efni
04.06.2026 Fréttir

Íris Róbertsdóttir ráðin bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar

Bæjarstjórn Vestmannaeyjabæjar hefur ráðið Írisi Róbertsdóttur í starf bæjarstjóra.

Deildu

Ráðningarsamningur við Írisi var undirritaður í gær að loknum fyrsta fundi nýrrar bæjarstjórnar og var það Eyþór Harðarson, formaður bæjarráðs, sem undirritaði samninginn fyrir hönd bæjarstjórnar.

Íris hefur gegnt störfum sem bæjarfulltrúi og bæjarstjóri undanfarin átta ár og býr yfir víðtækri reynslu af rekstri og stjórnsýslu Vestmannaeyjabæjar. Með ráðningunni í gær eru ákveðin kaflaskil þar sem Íris mun sinna starfi bæjarstjóra án setu í bæjarstjórn.