Fara í efni
24.04.2026 Fréttir

Innviðaráðherra svarar bæjarráði

Þann 15. april sendi bæjarráð svofellt erindi til innviðaráðherra

Deildu

Svar innviðaráðherra:

"Ég tek undir með þér að ástand í samgöngumálum Vestmannaeyja hefur verið afar erfitt undanfarið og full ástæða er til að rýna í stöðuna og leita leiða til eflingar.

Varðandi þær óskir sem þú settir fram í tölvupóstinum hér að neðan


Dýpkun hafnarinnar. 

Samkvæmt upplýsingum ráðuneytisins hafa dýpkunaraðgerðir gengið vel frá því síðustu helgi, fyrir utan síðasta mánudag. Vonir hafa staðið til að ásættanlegt dýpi verði komið í hafnarminnið fyrir helgi þannig að Herjólfur gæti farið að sigla þangað. Spá um ölduhæð um næstu helgi ku þó vera óhagstæð og gæti sett strik í reikninginn. Í öllu falli er, skv. upplýsingum ráðuneytisins, það nú spurning um daga frekar en vikur hvenær Landeyjahöfn opni aftur fyrir ferjusiglingum. Ekki er því talin ástæða eins og er til þess að leita út fyrir landsteina með annað dýpkunarskip.

 

Fjölgun flugdaga. 

Ráðuneytið hefur beitt sér fyrir því í fjórgang að tímabil áætlunarflugs til Vestmannaeyja sé framlengt, tvær vikur í hvert sinn, vegna ástandsins. Fyrstu skipti fjármagnaði ráðuneytið úr varasjóði málaflokksins. Nú er svo komið að sá sjóður getur ekki fjármagnað meir, og því var síðasta framlenging fjármögnuð með framlagi úr almennum varasjóði ríkisins. Ráðuneytið mun kanna möguleika á fjölgun flugdaga og hvort mögulegt verði að fjármagna slíkt úr almennum varasjóði.

 

Áætlun vegna bilunar Herjólfs.

Herjólfur IV var í slipp í Þorlákshöfn á mánudag til þess að losa hina biluðu vél. Sú vinna gekk hratt og vel fyrir sig og kláraðist um kvöldið og hann fór að sigla aftur í gær. Baldur leysti af tímabundið, en er nú aftur farinn til siglinga á Breiðafirði.  Hjá Vegagerðinni er nú unnið að því að koma Herjólfi III á haffæri, svo hann geti nýst í afleysingu. Viðgerð á vél Herjólfs IV er áætluð 7 vikur. Á meðan mun skipið sigla á einni vél. Ef þörf skapast munu Baldur, og síðan Herjólfur III vera kallaðir til að leysa af."

 

Fyrir hönd bæjarráðs hefur bæjarstjóri svarað og lýst vonbrigðum með viðbrögð ráðherra.

Bæjarráð telur að ráðherra hefði þurft að bregðast  með mun öflugri hætti við þeim þremur atriðum sem upp eru talin, enda staðan afleit.

Ráðið leggur þunga áherslu á að áætlunarflug til Eyja verði framlengt og bætt við ferðum á meðan þetta ástand varir og að aukið verði við dýpkunargetuna.

Ráðið lýsir ánægju með að verið sé að koma Herjólfi lll í notkunarhæft ástand. Það er nauðsynlegt að hafa hann tilbúinn til að hægt sé að bregðast við ef upp kemur bilun i Herjólfi lV.