Fara í efni
14.06.2022 Fréttir

Íbúð aldraðra við Sólhlíð

Vestmannaeyjabær auglýsir lausa til umsóknar íbúð eldri borgara við Sólhlíð 19. Íbúðin er 75,5 fm. Leiguverð fylgir leiguverði annarra íbúða hjá Vestmannaeyjabæ. 

Deildu

Sótt er um í gegnum íbúagátt á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar. Einnig er hægt að nálgast umsóknareyðublöð á skrifstofu Fjölskyldu og fræðslusviðs að Kirkjuvegi 23 (gamla Íslandsbanka) og skal þá fylgigögnum einnig skilað þangað.

Nauðsynlegt er að staðfesta eldri umsóknir. Frekari upplýsingar veitir Margrét Ingólfsdóttir, í síma 488-2000 eða á netfanginu margret@vestmannaeyjar.is.

Umsóknarfrestur er til 4. júlí nk.