Fara í efni
20.02.2026 Auglýsingar

Íbúð aldraðra

Vestmannaeyjabær auglýsir íbúð eldri borgara lausa til umsóknar

Deildu

Vestmannaeyjabær auglýsir lausa til umsóknar íbúð eldri borgara í Sólhlíð. Leiguverð fylgir leiguverði annarra íbúða hjá Vestmannaeyjabæ og er vísitölutengt. Umsóknarfrestur er til  9.mars nk.

Sótt er um í gegnum íbúagátt á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar. Einnig er hægt að nálgast umsóknareyðublöð á skrifstofu Fjölskyldu og fræðslusviðs að Kirkjuvegi 23 (gamla Íslandsbanka) og skal þá fylgigögnum einnig skilað þangað. Mikilvægt er að skila inn öllum gögnum sem óskað er eftir eða nýjum gögnum hafi aðstæður breyst frá fyrri umsókn. Eldri umsóknir óskast staðfestar.

Frekari upplýsingar veitir Margrét Ingólfsdóttir, í síma 488-2000 eða á netfanginu margret@vestmannaeyjar.is.  Einnig er hægt að fá nánari upplýsingar í þjónustuveri Fjölskyldu -og fræðslusviðs að Kirkjuvegi 23.