Vestmannaeyjabær vinnur nú að mótun atvinnustefnu fyrir Vestmannaeyjar þar sem markmiðið er að móta skýra framtíðarsýn Vestmannaeyjabæjar fyrir atvinnulíf í bænum og styrkja samkeppnishæfni og fjölbreytni atvinnugreina.
Á íbúaþinginu verður rætt um stöðu atvinnumála í Vestmannaeyjum, helstu tækifæri og áskoranir til framtíðar og ætlunin er að skapa vettvang fyrir uppbyggilegt samtal, kalla fram hugmyndir og sjónarmið sem nýtast við mótun stefnunnar. Íbúar eru hvattir til þátttöku svo sem flestar raddir heyrist og atvinnustefnan endurspegli áherslur og stuðning Vestmannaeyjabæjar við fjölbreytta atvinnustarfsemi í bæjarfélaginu.