Fara í efni
31.01.2006 Fréttir

Íbúaþing í Vestmannaeyjum

Laugardaginn 18. febrúar næstkomandi, verður haldið íbúaþing í Eyjum. Íbúaþing er vettvangur þar sem íbúum gefst
Deildu

Laugardaginn 18. febrúar næstkomandi, verður haldið íbúaþing í Eyjum. Íbúaþing er vettvangur þar sem íbúum gefst einstakt tækifæri til að láta rödd sína heyrast og taka virkan þátt í umræðu um framtíð og stefnu bæjarfélagsins.

Þingið verður haldið í Höllinni og stendur frá kl. 10.30 og fram eftir degi. Fólk getur valið um hvort það lítur inn í stuttan tíma, tekur þátt í einum umræðuhópi eða er með allan daginn. Munurinn á íbúaþingum Alta og hefðbundnum borgarafundum liggur fyrst og fremst í því að notaðar eru aðrar aðferðir við stjórnun þingsins og hópanna. Allir hafa jafna möguleika á að koma hugmyndum sínum og ábendingum á framfæri á einfaldan hátt án þess að standa upp og halda ræður. Íbúaþing er vettvangur, þar sem fram fer kraftmikil og málefnaleg umræða og lifandi gerjun hugmynda með þátttöku allra, líka þeirra sem alla jafna láta lítið fyrir sér fara á fundum. Það er samdóma álit þeirra sem tekið hafa þátt í íbúaþingum Alta að það hefur verið gagnlegt, lærdómsríkt og umfram allt skemmtilegt.

Eyjamenn hafa staðið frammi fyrir ýmsum breytingum á undanförnum árum, s.s. fækkun íbúa og minnkandi kvóta. Slæm fjárhagsstaða bæjarfélagsins er einnig takmarkandi þáttur. Þrátt fyrir þetta er samfélagið sterkt og vaxtarbroddarnir margir. Með íbúaþinginu er ætlunin að virkja þann kraft sem býr í íbúunum sjálfum. Hvert vilja Eyjamenn stefna, hvar sjá þeir sóknarfæri?

Meðal viðfangsefna í umræðuhópum er atvinnulíf og samgöngur, samfélags- og fræðslumál og umhverfi og auðlindir. Í skipulagshópum verður viðfangsefnið skipulag miðbæjar og tenging við hafnarsvæði og verður þar unnið með hugmyndir íbúa yfir kort.

Fyrir þingið verður unnið með börnum og unglingum í skólum bæjarins og munu fulltrúar þeirra kynna sínar hugmyndir á þinginu.

Helstu skilaboð þingsins og viðbrögð bæjarstjórnar, verður síðan kynnt, að öllum líkindum 28. febrúar

Fræðslu- og menningarsvið Vestmannaeyjabæjar

Ráðgjafarfyrirtækið Alta sem hefur umsjón með þinginu.