Vestmannaeyjabær boðar til íbúakosninga dagana 4.–16. maí 2026 þar sem íbúar Vestmannaeyjabæjar verða beðnir að taka afstöðu til framtíðar þróunarsvæðisins M2, sem fór undir hraun í Heimaeyjargosinu árið 1973.
Í kosningunum verður lögð fyrir íbúana eftirfarandi spurning:
„Ertu fylgjandi því að Vestmannaeyjabær skoði möguleika á uppbyggingu á þróunarsvæðinu M2, sem fór undir hraun í gosinu 1973?“
Markmið íbúakosninganna er að fá skýra sýn íbúa á hvort halda eigi áfram vinnu við að kanna möguleika á uppbyggingu á svæðinu. Um er að ræða stefnumótandi ákvörðun sem getur haft áhrif á framtíðarþróun Vestmannaeyjabæjar.
Opinn upplýsingafundur um íbúakosningarnar og málið var haldinn í gær, mánudaginn 20. apríl, í Eldheimum. Góð mæting var á fundinn og sýndu íbúar málinu mikinn áhuga.
Á fundinum var farið yfir aðdraganda málsins og þróunarsvæðið M2 kynnt nánar. Einnig var gerð grein fyrir því hvað íbúakosningarnar fela í sér, hvernig atkvæðagreiðslan fer fram og hvað niðurstaða hennar mun þýða fyrir áframhaldandi vinnu Vestmannaeyjabæjar. Fundargestir fengu jafnframt tækifæri til að spyrja spurninga og koma á framfæri sjónarmiðum sínum.
M2 svæðið er hluti af því landi sem fór undir hraun í eldgosinu árið 1973 og hefur lengi verið til umfjöllunar í skipulags- og þróunarsamhengi bæjarins. Hugmyndir er að uppbygging verði eins og er á miðbæjarskipulagi (M1) þar sem um er að ræða verslun, þjónustu og íbúðir.
Áhersla er lögð á að íbúakosningarnar snúist um það hvort Vestmannaeyjabær eigi að halda áfram að skoða möguleika á uppbyggingu, en ekki um ákveðnar eða fullmótaðar framkvæmdir.
Vestmannaeyjabær hvetur alla kosningabæra íbúa til að kynna sér málið vel og taka þátt í íbúakosningunum dagana 4.–16. maí. Nánari upplýsingar um spurningar og svör og aðgengi að frekari gögnum má finna á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar á næstu dögum.
Hægt er að senda spurningar um íbúakosninguna á netfangið ibuakosningar@vestmannaeyjar.is
