Þátttaka
Einstaklingar með lögheimili í Vestmannaeyjum, fæddir árið 1995 og fyrr hafa atkvæðarétt í könnuninni.
Rafræn kosning
Hægt er að kjósa rafrænt frá kl. 00.01 þriðjudaginn 21.maí og til 00.00 miðvikudagsins 22.maí, þ.e í tvo sólarhringa. Til þess að kjósa rafrænt þá er farið inn á vefsíðuna www.island.is/islykill og þar er sótt um svokallaðan Íslykil, en lykillinn er nokkurs konar auðkenni á netinu. Þar sem tímafrestur til að fá Íslykilinn afhentan í bréfpósti er liðinn, þá þarf að velja að viðkomandi vilji fá Íslykilinn í gegnum net -eða heimabanka. Eftir að það hefur verið valið líða nokkrar mínútur þar til Íslykillinn berst í netbanka viðkomandi. Því næst þarf að skrá sig inn á http://ibuagatt.vestmannaeyjar.is. Þar inni mun birtast flipi sem á stendur "Kosningar" og þar verður hægt að greiða atkvæði.
Kosning í Safnahúsi
Þeir sem einhverra hluta vegna geta ekki nýtt sér rafræna kosningu, eða kjósa að gera það ekki, geta greitt atkvæði í anddyri Safnahússins þriðjudaginn 21.maí og miðvikudaginn 22.maí. Opið verður frá 08-16 báða dagana. Opið verður í hádeginu.
Aðgangur að gögnum
Vestmannaeyjabær leggur áherslu á að málið sé kynnt eins og frekast er kostur svo bæjarbúar geti tekið upplýsta ákvörðun í málinu. Borið verður í öll hús Fréttabréf um málið, en jafnframt munu þau gögn sem vísað er til í Fréttabréfinu liggja frammi til skoðunar, í anddyri safnahússins kosningadagana frá 08-16.
Spurningin
Á atkvæðaseðlinum verður spurningin „Vilt þú að Vestmannaeyjabær veiti byggingaleyfi fyrir hótel það sem kynnt hefur verið á lóðinni í Hásteinsgryfjunni?“ og svarmöguleikarnir eru "Já" eða "Nei".
Það er von Vestmannaeyjabæjar að sem flestir kynni sér málið, taki afstöðu og nýti sér þar með þetta einstaka tækifæri til að segja sína skoðun á nærsamfélagi okkar.