Með íbúagáttinni opnast rafrænn og persónulegur aðgangur íbúa sveitarfélagsins að stjórnsýslu þess. Þannig munu íbúarnir geta séð og nálgast yfirlit yfir ógreidda reikninga hjá sveitarfélaginu, sjá hreyfingar viðskiptareiknings, álagningarseðla fasteignagjalda og sótt með rafrænum hætti ýmissa þjónustu sveitarfélagsins svo sem leikskólapláss, frístundastyrk, heimagreiðslur ofl.
Beinn aðgangur er inn á MENTOR fyrir þá sem nota þá þjónustu.
Íbúagáttin er aðgengileg í gegnum heimasíðu Vestmannaeyjabæjar. Þar sem aðgangurinn er persónulegur þarf hver íbúi að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum eða íslykli sem hægt er að sækja um á vefsíðunni http://www.island.is/islykill.
Það er von sveitarfélagsins að þessi þjónusta nýtist vel og falli í góðan jarðveg. Allar ábendingar varðandi þjónustuna eru vel þegnar.
Af hverju Íbúagátt ?
• Betri yfirsýn íbúa sveitarfélagsins yfir þeirra mál hjá sveitarfélaginu
• Skilvirkari og ábyrgari stjórnsýsla
• Sparar vinnu og umsýslu hjá sveitarfélaginu
• Býður upp á pappírslaus viðskipti og lækkun innheimtukostnaðar í framtíðinni
f.h. Vestmannaeyjabæjar
Elliði Vignisson bæjarstjóri.