Á fundinum verða kynntar helstu niðurstöður viðhorfskönnunar um þjónustu sveitarfélagsins við íbúa Vestmannaeyjabæjar. Markmiðið er að upplýsa bæjarbúa um stöðu þjónustunnar í Vestmannaeyjum og leita eftir viðbrögðum um hvað megi betur fara og hvernig hægt er að bæta þjónustuna.
17:30 – 17:50 Kynning á þjónustukönnun Gallup – Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri.
17:50 – 18:25 Umræður um niðurstöður könnunarinnar og stöðu sveitarfélagsins.
18:25 – 18:30 Samantekt í lokinn.
Þátttakendum verður skipt í nokkra hópa eftir fjölda og umræður um einstök málefni fara fram á sérstökum svæðum í fjarfundarbúnaðinum með því að skipta hópnum upp í svokölluð herbergi. Meðal málefna verða sorpmál, skipulagsmál, skólamál, íþróttamál, umhverfismál, staða eldri borgara, barnafjölskyldna og fatlaðra, menningarmál og þjónusta starfsmanna sveitarfélagsins.
Kjörnir fulltrúar og nefndarfólk Vestmannaeyjabæjar munu skipta sér í herbergin eftir málaflokkum.
Leiðbeiningar um notkun Zoom á fundinum verða aðgengilegar fljótlega.
Bæjarbúar eru hvattir til þátttöku.
Bætum samfélagið saman
Vestmannaeyjabær
