Fara í efni
21.02.2023 Fréttir

Í Vestmannaeyjum er best að búa!

Vestmannaeyjar skora hæst meðal 20 stærstu sveitarfélaga á Íslandi þegar spurt er um ánægju íbúa með sveitarfélagið sitt sem stað til að búa.

Deildu

Samkvæmt árlegri þjónustukönnun Gallup ríkir almenn ánægja meðal bæjarbúa með þjónustu bæjarins. Það er afskaplega ánægjulegt frá því að segja að alls voru 94% þátttakenda ánægðir með sveitarfélagið sem stað til að búa á og skora Vestmannaeyjar þar hæst á meðal allra sveitarfélaganna, með einkunnina 4,5 af 5 mögulegum. Milli ára fjölgar marktækt í hópi ánægðra íbúa í Eyjum.

Vestmannaeyjabær er auk þess í efsta sæti í 4 þáttum til viðbótar, af 13, þegar spurt er um ánægju íbúa: þjónustu við fatlaða, þjónustu við barnafjölskyldur, í menningarmálum og hvernig starfsfólk bæjarins leysir úr erindum íbúanna. Þetta er mjög jákvætt og gott veganesti í þeirri vinnu að bæta enn frekar þjónustu við bæjarbúa.

Af könnunni má ráða að við þurfum helst að bæta okkur í sorpmálum, þótt þarf hafi náðst marktækur árangur á síðustu tveimur árum.

Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri, kynnti þessar niðurstöður á almennum íbúafundi sem haldinn var í dag. Jafnframt var á þeim fundi rædd sú alvarlega staða sem komin er upp í rafmagnsmálum í Vestmannaeyjum vegna bilunar í sæstreng. Forsvarsmenn Landsnets og HS-veitna tóku þátt í fundinum.

Hægt er að sjá niðurstöður þjónustukönnunar Gallup (hér)

Ábendingar um niðurstöður þjónustukönnunarinnar og það sem má betur fara er hægt að senda á netfangið thjonustukonnun@vestmannaeyjar.is