Fara í efni
04.04.2022 Fréttir

Hvatningarverðlaun fræðsluráðs Vestmannaeyja 2022

Veistu af áhugaverðum þróunar– og nýbreytniverkefnum í GRV, leikskólum, Tónlistarskóla eða Frístund sem þú vilt vekja athygli á? Fræðsluráð Vestmannaeyja auglýsir eftir tilnefningum til Hvatningarverðlauna fræðsluráðs 2022.

Deildu

Hægt er að tilnefna kennara, kennarahópa og starfsmenn í leikskólum, Grunnskóla Vestmannaeyja, Tónlistarskóla Vestmannaeyja og Frístund. Allir geta tilnefnt verkefni til verðlaunanna; s.s. foreldrar, ömmur og afar, nemendur, stofnanir, samtök, starfsfólk Vestmannaeyjabæjar, þ.m.t. starfsfólk í leikskólum, grunnskóla, Tónlistarskóla og Frístund. Valin verða þrjú verkefni sem fá verðlaun og eru það verkefni sem þykja skara fram úr og vera öðrum til eftirbreytni.

Frestur til að skila inn tilnefningum er til 30. apríl nk.

Með því að smella hér nálgastu eyðublað til að tilnefna.