Samtök sunnlenskra sveitarfélaga boða til opinna samráðsfunda fyrir alla áhugasama, nú í upphafi vinnu við mótun umhverfis- og auðlindastefnu fyrir Suðurland. Verkefnið er áhersluverkefni Sóknaráætlunar Suðurlands á vegum samtakanna.
Viðfangsefni fundanna er að greina helstu tækifæri og álitamál á sviði umhverfis- og auðlindamála. Einnig verða kynnt áhugaverð fordæmi í þessum efnum.