Það eru sviðsstjórafundir í hverri viku á þriðjudögum þar sem farið er yfir helstu mál sem eru á döfinni þá viku og það sem er framundan.
8. - 15. mars
Stór hluti vikunnar fór í undirbúning bæjarráðs og bæjarstjórnar vegna fyrri umræðu um ársreikning.
Bæjarráð hélt undirbúningsfund; allt ráðið og sviðsstjóri hittust og fóru yfir helstu mál og undirbjuggu fundinn.
Hagræðingarhópur á sviðum fjölskyldumála og bæjarráðs fundaði áfram með forstöðumönnum á þessum sviðum.
Bæjarráðsfundur var í vikunni. Þar var fyrirferðamest umræða um ársreikning 2025 og kynning á honum, en öllum bæjarfulltrúum var boðið að sitja þann lið. Hér má lesa fundargerðina.
Bæjarstjórnarfundur var sama dag. Þar voru ársreikningur 2025 til fyrri umræðu og samgöngumál á dagskrá, ásamt fleiri málum.
Fundargerðina má nálgast hér.
Samtöl og fundir með hafnarsviði Vegagerðarinnar hafa verið fjölmargir, enda er staðan í Landeyjahöfn óbreytt og höfnin enn lokuð.
Árshátíð Vestmannaeyjabæjar var haldin þann 14. mars. Var hún glæsileg að vanda og mikil stemning.
16. -22. mars
Fundaði ásamt sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs með forsvarsfólki Sögusetursins 1627 vegna viðburða árið 2027, þegar 400 ár verða liðin frá Tyrkjaráninu. Samstarf verður milli Vestmannaeyjabæjar og Sögusetursins um þá viðburði sem verða haldnir.
Fór í viðtal í Bítinu á Bylgjunni ásamt Kristni Jónassyni, bæjarstjóra í Snæfellsbæ, um opinn orkufund Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum sem haldinn var 18. mars.
Orkufundurinn var með yfirskriftina: Rafmagnsreikningurinn – hver borgar, hver hagnast og hverju er hægt að breyta? Fundurinn heppnaðist vel, með áhugaverðum erindum frá öllum sem fara með þessi mál, auk ráðherra málaflokksins, og var hann vel sóttur.
Upplýsingar um fundinn, glærur og myndir má sjá hér.
Einnig var stjórnarfundur hjá samtökunum, þar sem farið var yfir þær breytingar sem unnið er að í málaflokknum og er verið að vinna í samráði við ráðuneytið.
Sat ársfund Íslandsstofu. Þar var afar áhugavert að sjá samsetningu ferðamanna og þær greiningar sem kynntar voru varðandi útflutning frá landinu.
Fundaði með utanríkisráðherra og formanni Viðreisnar um hagsmunamál sem snúa að okkur hér í Eyjum, sérstaklega varðandi almannavarnalögnina NSL-4.
Bæjarráð, í samráði við vatnshópinn, vinnur að erindi til innviðaráðuneytisins um fjármögnun á NSL-4 almannavarnalögn.
Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga var haldinn 20. mars og var ég endurkjörin í stjórn sjóðsins.
Einnig voru haldnir stjórnarfundir sama dag og skipti stjórn með sér verkum.
Rauði krossinn í Vestmannaeyjum fagnaði 85 ára afmæli með kaffisamsæti í Arnardrangi.
Núverandi og fyrrverandi formenn, ásamt sóknarpresti Eyjamanna, stilltu sér upp af því tilefni.
23. mars–1. apríl
Bæjarráð hélt undirbúningsfund. Þar hittust allt ráðið og sviðsstjóri og undirbjuggu komandi fund.
Vatnshópurinn, skipaður af bæjarráði í tengslum við vinnu vegna NSL-3 og NSL-4 (Njáll Ragnarsson, Eyþór Harðarson og Páll Magnússon ásamt starfsfólki), fundaði með lögmanni bæjarins um frágang erindis til innviðaráðherra vegna almannavarnalagnarinnar NSL-4. Drög að erindinu verða í framhaldinu lögð fyrir bæjarráð.
Átti fund, ásamt sviðsstjórum fræðslu- og fjölskyldusviðs og umhverfis- og framkvæmdasviðs, með framkvæmdastjóra Fimleikafélagsins Rán. Rætt var um aðstöðu til fimleikaiðkunar.
Aðalfundur Herjólfs er jafnan haldinn á milli umræðna um ársreikning Vestmannaeyjabæjar. Farið var yfir skýrslu stjórnar, ársreikning og önnur hefðbundin aðalfundarstörf. Framkvæmdastjóri fór jafnframt yfir verkefni sumarsins og þær breytingar sem eru framundan.
Nýkjörin stjórn Herjólfs ásamt framkvæmdarstjóra.
Fundur var í skólanefnd FÍV þar sem farið var yfir fjármál skólans og starfsemi hans, sem er mjög öflug.
Fundur var í bæjarráði þar sem endurskoðaður ársreikningur var lagður fram, auk þess sem endurskoðendur fóru yfir endurskoðendaskýrslu. Öllum bæjarfulltrúum var boðið að sitja þann dagskrárlið. Fjölmörg önnur mál voru einnig til umfjöllunar. Fundargerð ráðsins er hægt að nálgast hér.
Bæjarstjórnarfundur var 25. mars. Þar var seinni umræða um ársreikning aðalmálið, ásamt umræðum um samgöngur. Rekstrarniðurstaðan er sú besta í 15 ár. Fundargerðina má nálgast hér.
Fundaði með formanni Slysavarnarfélagsins Eykyndils, Ebbu Guðlaugu Gunnarsdóttur, vegna undirbúnings þings slysavarnakvenna sem haldið verður næsta haust.
Félagar úr Round Table heimsóttu Ráðhúsið og fræddust um ýmiss málefni sem tengjast bænum. Umræður voru skemmtilegar og fjörugar.
Sundlaugin okkar opnaði aftur eftir margra mánaða lokun vegna viðgerða og endurnýjunar á búnaði. Margir mættu og boðið var upp á köku og kaffi.
Í lok mars kom fyrsti hluti listaverks Olafs Eliassonar til Eyja. Unnið var að uppsetningu verksins og verður viðburður og kynning á því um mánaðamótin apríl/maí.
Ríkisstyrkt flug var framlengt að ósk Vestmannaeyjabæjar í 3 sinn um tvær viku til 15. apríl vegna stöðunnar á Landeyjahöfn.
Góðar fréttir bárust af samgöngum þegar Vegagerðin tilkynnti að samið hefði verið við nýja aðila um dýpkun til áranna 2026–2029.












