• Akóges • Kiwanis / Sinawik
• Björgunarfélag Vestmannaeyja • Lions
• Fimleikafélagið Rán • Oddfellow
• Framsóknarfélag Vestmannaeyja • Rotaryklúbbur Vestmannaeyja
• Frímúrarareglan • Sjálfstæðisfélag Vestmannaeyja
• Hvítasunnukirkjan • Skátafélagið Faxi
• Íþrótta- og hestamannafélagið Gáski • Skotfélag Vestmannaeyja
• KFUM og K • Skógræktarfélag Vestmannaeyja
• Vestmannaeyjalistinn
Forsvarsmenn ofantalinna félaga eru beðnir að hafa samband við félagsmenn sína og boða svo þátttöku félagsins til Umhverfis- og framkvæmdasviðs. Forsvarsmenn félaga sem ekki boðuðu þátttöku í fyrra en hafa áhuga að vera með eru beðnir um að hafa samband við Umhverfis og framkvæmdasvið, á netfangið umhverfissvid@vestmannaeyjar.is eða í síma 488-2530 fyrir kl. 12.00 föstudaginn 6. maí n.k.
Þeir sem standa utan félaga en hafa áhuga á að taka þátt í hreinsunardeginum eru einnig hvattir til þess skrá sig.
Dagur þessi er að sjálfsögðu hugsaður sem fjölskyldudagur þar sem allir – mamma, pabbi, amma, afi, og krakkarnir – sameinast um að gera Heimaey enn fallegri.
Hugmyndin er að byrjað verði kl. 10.00 og verið að til kl. 12.00. Þá verður grillveisla í boði Bæjarstjórnar Vestmannaeyjabæjar við Ráðhúsið.