Fara í efni
06.05.2014 Fréttir

Hreinsunardagur á Heimaey 10.maí n.k.

Deildu
 
 
Laugardaginn 10. maí n.k. frá kl 10.00 til kl. 12.00 verður hinn árlegi hreinsunardagur haldinn á Heimaey. Félagasamtök í Vestmannaeyjum hafa í gegnum tíðina tekið þátt í þessu verkefni og hefur þetta gengið mjög vel. Fyrirkomulagið verður það sama og venjulega. Félagasamtökum er úthlutað svæðum sem þau síðan hreinsa.
 
 
Pokar verða afhentir í Áhaldahúsinu kl. 10.00. Starfsmenn Kubbs munu vera hópunum innan handar. Að loknu hreinsunarátaki mun Bæjarstjórn síðan bjóða til grillveislu á Ráðhúströð.
 
 
Kort af svæðum sem félög hafa tekið að sér má sjá HÉR
 
 
Forsvarsmenn félagasamtaka sem áhuga hafa á að taka þátt er bent á að hafa samband við Umhverfis- og framkvæmdasvið Vestmannaeyjabæjar í síma 488-2530 eða á netfangið umhverfissvid@vestmannaeyjar.is