Fara í efni
21.03.2019 Fréttir

Hraunbúðir óska eftir sumarstarfsfólki í skemmtilegt og gefandi starf með yndislegu heimilisfólki og frábæru starfsfólki

Á hjúkrunar- og dvalarheimilið Hraunbúðir í Vestmannaeyjum vantar starfsfólk í umönnun og aðhlynningu í sumar með möguleika á vinnu næsta vetur. 

Deildu
Á Hraunbúðum eru 28 hjúkrunarrými, 8 dvalarrými og 1 hvíldarrými auk annarrar þjónustu við eldri borgara. Nánari upplýsingar um heimilið má sjá inn á www.hraunbudir.is Mikilvægt er að viðkomandi hafi til að bera jákvætt viðhorf, frumkvæði, góða samskiptahæfileika og áhuga á að vinna með öldruðum. Laun skv. kjarasamningum sambands íslenskra sveitarfélaga og stéttarfélags viðkomandi. Umsókn og ferilskrá óskast send rafrænt á hraunbudir@vestmannaeyjar.is
Umsóknarfrestur er til 20. apríl.   

 

Nánari upplýsingar veitir Sólrún Gunnarsdóttir deildarstjóri í öldrunarmálum í síma 488 2602, solrun@vestmannaeyjar.is