Fara í efni
31.03.2016 Fréttir

Hraunbúðir óska eftir hjúkrunarfræðing

Á hjúkrunar- og dvalarheimilið Hraunbúðir í Vestmannaeyjum vantar 100 % stöðugildi hjúkrunarfræðings og einnig vantar í sumarafleysingar við hjúkrun. Á Hraunbúðum eru 28 hjúkrunarrými, 8 dvalarrými og 1 skammtímarými auk annarrar þjónustu við eldri borgara. Nánari upplýsingar um heimilið má sjá inn á www.hraunbudir.is
 
Deildu

Helstu verkefni
• Ákveða, skipuleggja og veita hjúkrunarmeðferð í samráði við... hjúkrunarforstjóra og bera ábyrgð á meðferð
Hæfniskröfur
• Íslenskt hjúkrunarleyfi
• Jákvætt viðhorf, frumkvæði og góðir samskiptahæfileikar
• Sjálfstæði í vinnubrögðum
Nánari upplýsingar
• Umsóknarfrestur er til 20.apríl
• Laun skv. kjarasamningum sambands sveitarfélaga og félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
• Umsókn fylgi afrit af hjúkrunarleyfi og prófskírteinum
• Umsókn óskast send á leaodds@gmail.com eða hraunbudir@vestmannaeyjar.is
• Nánari upplýsingar veitir Lea Oddsdóttir hjúkrunarforstjóri Hraunbúða í síma 488 2600/893 1784 eða Sólrún Gunnarsdóttir deildarstjóri í málefnum aldraðra 488 2602/8601030