Fara í efni
09.07.2004 Fréttir

Holræsaframkvæmdir ganga vel

Vestmannaeyjabær hefur að undanförnu unnið að endurnýjun holræsalagna í bænum skv. áætlun til ársins 2010.  Að undanförnu hefur verið unnið að  endurnýjun holræsa í Vestmannabraut frá Kirkjuvegi að Heimagötu.  S
Deildu

Vestmannaeyjabær hefur að undanförnu unnið að endurnýjun holræsalagna í bænum skv. áætlun til ársins 2010.  Að undanförnu hefur verið unnið að  endurnýjun holræsa í Vestmannabraut frá Kirkjuvegi að Heimagötu.  Skipt er um stofnlagnir, burðarlög og malbiksslitlög á svæðinu.  Stefnt  er að því að ljúka malbikun á fyrri verkhluta þann 23. júlí n.k. 

Hlutaðeigandi aðilar eru beðnir um að sýna aðgæslu á svæðinu meðan á framkvæmdum stendur. 

Vestmannaeyjabær þakkar fyrir sýnda tillitsemi vegna framkvæmdanna.

 Með góðri kveðju

Frosti Gíslason
Framkvæmdastjóri Umhverfis- og framkvæmdasviðs Vestmannaeyjabæjar