Allir áhugasamir um að hjóla og að verða Hjólarar, eru hvattir til að koma og vera með okkur á námskeiðinu. Við ætlum að fræðast um hjólið, prófa að hjóla og vera farþegar og fara yfir það sem við þurfum að hafa í huga til að notkun hjólsins verði ævinlega farsæl. 6. júní 2018
Sesselja Traustadóttir hefur haldið utan um Hjólað óháð aldri verkefnið frá upphafi hér á Íslandi, kemur og leiðbeinir okkur um notkun á hjólinu. Nánar um verkefnið á heimasíðunni www.hoa.is eða á Facebook síðunni Hjólað óháð aldri.
Upplýsingar veitir Lísa í s. 4882620 eða á lisa@vestmannaeyjar.is