Fara í efni
29.04.2016 Fréttir

Heimagreiðslur Vestmannaeyjabæjar til forráðamanna

Vestmannaeyjabær hefur samþykkt að greiða sérstakar heimagreiðslur til forráðamanna barna frá 9 mánaða aldri og þar til barn fær daggæsluúrræði eða boð um leikskólavist. 

Deildu
Umsóknareyðublöð og reglur um heimagreiðslur verður að finna á vefsíðu Vestmannaeyjabæjar www.vestmannaeyjar.is og í þjónustuveri Ráðhússins frá og með 29. apríl.
 

ath: Umsóknir sem berast  fyrir 15. maí nk. verða teknar gildar fyrir maí mánuð en eftir það  gilda reglur um að heimagreiðslur séu veittar frá næstu mánaðarmótum eftir að umsókn er móttekin ef barnið hefur náð aldri til úthlutunar og það er ekki í daggæsluúrræði.

 

Vestmannaeyjabær