Bólusetningin lagðist vel í Sissu, sagðist oft hafa fengið sprautu áður þó við öðru hafi verið og gengið vel. Hana hlakkar mest til að verða frjálsari og að hitta fólkið sitt meira eftir að hafa fengið seinni sprautuna en 3 vikur þurfa að líða á milli bólusetninga og nokkrir dagar eftir það svo bóluefnið nái fullri virkni.
Sissa sem varð 95 ára 1.mars s.l náði að halda upp á afmælið sitt með pompi og pragt í hátíðarsal Hraunbúða með allri fjölskyldunni, rétt áður en kórónuveiran fór að hafa áhrif í samfélaginu. Aðspurð hvort hún telji að hún geti haldið upp á 96 ára afmælið með svipuðum hætti, sagði hún alla vega alltaf tilefni til að halda upp á afmælið sitt eftir að 95 ára áfanganum sé náð. Annars sagði Sissa að henni hafi ekki dottið til hugar að bólusett yrði þetta fljótt þar sem oft tæki svo langan tíma að finna bóluefni við nýjum veirum en það sé alveg greinilegt að menn hafi tekið höndum saman til að láta þetta ganga upp. Þetta tímabil hafi verið ótrúlega fljótt að líða þegar horft sé til baka. Elsti íbúi eyjanna Elías Gunnlaugsson 98 ára fékk síðan næstu sprautu. Bæjarstjórinn okkar Íris Róbertsdóttir færði blómvönd í tilefni dagsins og óskaði okkur til hamingju með þennan frábæra áfanga í baráttunni við heimsfaraldurinn. Við erum svo þakklát að vera komin á þennan stað og sjá glitta í endalokin á þessum faraldri. Við ætlum að halda þetta út og klára þetta verkefni saman með áframhaldandi sóttvörnum og dansa svo inn í vorið. Allt heimilisfólk á Hraunbúðum var síðan bólusett í dag og var að sjálfsögðu flaggað í tilefni dagsins.
" alt="" />
" alt="" /> " alt="" />82Thelma Lind Þórarinsdóttir, Íris Róbertsdóttir og 80 til viðbótar13 ummæli6 deilingarLíkar þettaSkrifa ummæliDeila
