
16.06.2026
Tilkynningar
Hátíðarhöld 17. júní flutt inn í Íþróttamiðstöðina vegna veðurspár
Veðurspá gerir ráð fyrir rigningu á þjóðhátíðardaginn 17. júní í Vestmannaeyjum og því hefur verið tekin sú ákvörðun að flytja hátíðarhöld dagsins inn í Íþróttamiðstöð.
Hátíðarhöldin krefjast undirbúnings og því þarf að taka ákvörðun í dag um að flytja dagskránna inn til þess að gestir geti notið þess sem boðið er upp á sem best.
Vestmannaeyjabær leggur áherslu á að skapa áfram hátíðlega og gleðilega stemningu í tilefni dagsins þrátt fyrir breytinguna.
Athygli er vakin á því að skrúðgangan hefst við Skátaheimilið á Faxastíg og gengið verður upp að Íþróttamiðstöðinni.
Uppfærð dagskrá hér fyrir neðan.