Við í Kirkjugerði fengum skemmtilega heimsókn í gær. Tveir hænuungar komu til okkar og kíktu á allar deildar.
Ungarnir vöktu mikla athygli bæði hjá ungum sem öldnum.
Börnin voru mjög blíð og róleg í kringum ungana vitandi hversu litlir og viðkvæmir þeir eru
Í kjölfarið sköpuðust fjörugar umræður um hænuunga, hvað þeir borða, hvar mamma þeirra sé og annað sem þeim við kemur.





