Veðurstofa Íslands hefur gefið út appelsínugulan viðvörun fyrir Suðurland vegna austan og norðaustan storms. Viðvörunin tekur gildi klukkan 05:00 miðvikudaginn 14. október, og gildir til klukkan 10:00 sama dag. Spáð er austan og norðaustan 18-28 m/s og vindhviður staðbundið yfir 40 m/s, hvassast syðst. Talsverð rigning á láglendi. Ekkert ferðaveður. Lausamunir geta fokið.
Ef fella á niður skólastarf eða loka stofnunum skulu þær ákvarðanir miðast við útgefna litakóða Veðurstofu Íslands og Almannavarna:
Gul viðvörun: Stofnanir opnar.
Appelsínugul viðvörun: Stofnanir alla jafna opnar og skólastarf óskert. Þjónustunotendur ákveða hvort þeir nýti þjónustuna eða ekki og foreldrar meta hvort börn þeirra mæti í skólann. Bæjaryfirvöld ákveða, eftir samráð við lögreglu, hvort til lokana þarf að koma.
Rauð viðvörun: Skólastarf fellt niður og stofnanir lokaðar skv. tilmælum lögreglu og Almannavarna.
Forstöðumenn taka ákvörðun um lokanir eða skerðingu á starfsemi í samráði við bæjarstjóra og/eða sviðsstjóra.
Nánari upplýsingar um litakerfi Veðurstofu má nálgast hér:
Litakerfið - veðurbæklingur
