Umsjónarkennari á mið – og unglingastigi 80%-100% starfshlutfall
Kennari í Hönnun og smíði í Barnaskóla (5. -10. bekkur) 80-100% starf
Helstu verkefni grunnskólakennara:
- Fylgist með námi og þroska allra nemenda sinna og leitast við að skapa kennsluaðstæður sem eru hvetjandi til náms, vinnusemi og þroska.
- Skipuleggur kennslu sína í samræmi við markmið Aðalnámskrár og stefnu skólans og með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda hverju sinni.
- Beitir fjölbreyttum kennsluaðferðum til að tryggja árangur nemenda.
- Færir einkunnir, umsagnir og mætingu inn í Mentor eftir því sem við á.
- Tekur þátt í samstarfi við aðra kennara.
- Situr starfsmannafundi, kennarafundi, deildarfundi, fagfundi og aðra þá fundi sem skólastjórn ætlast til að faggreinakennari taki þátt í.
- Leysir úr vandamálum sem upp kunna að koma hjá nemendum.
- Er í góðu sambandi við umsjónarkennara nemenda.
- Sérgreinakennari hefur samband við foreldra ef þarf en mikilvægt er að gera það í samráði við umsjónarkennara.
- Umsjónarkennari hefur umsjón og ber ábyrgð á sínum umsjónarbekk.
Viðkomandi þarf að hafa leyfisbréf til kennslu, vera metnaðarfullur, ábyrgur, áhugasamur, lipur í samskiptum og tilbúinn í öflugt samstarf og með áhuga á teymiskennslu og á þróunarverkefni skólans, Kveikjum neistann. Hafa velferð og þroska nemenda að leiðarljósi. Skólinn vinnur eftir uppeldi til ábyrgðar.
Viðkomandi þarf að hafa hreint sakavottorð.
Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og leyfisbréf auk kynningarbréfs þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni í starfið.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi KÍ og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Starfsmaður þarf að geta hafið störf 15. ágúst n.k.
Náms – og starfsráðgjafi 80% starfshlutfall
Staða náms- og starfsráðgjafa við Grunnskóla Vestmannaeyja er laus til umsóknar. Um er að ræða 80% stöðu að mestu í Barnaskóla.
Námsráðgjafi er hluti af stoðkerfi skólans. Hlutverk námsráðgjafa er að vera talsmaður nemenda í skólanum, standa vörð um velferð nemenda og leita lausna í málum þeirra.
Helstu verkefni náms- og starfsráðgjafa eru:
- Einstaklingmiðuð ráðgjöf í námi og starfi og stuðningur.
- Ráðgjöf við náms- og starfsval (náms- og starfsfræðsla).
- Ráðgjöf í námstækni.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf sem náms- og starfsráðgjafi.
Viðkomandi þarf að vera metnaðarfullur, ábyrgur og áhugasamur og að vera tilbúinn í öflugt samstarf með velferð og þroska nemenda að leiðarljósi. Hæfni og lipurð í samskiptum er mikilvægur þáttur. Viðkomandi þarf að hafa hreint sakavottorð.
Starfsmaður þarf að geta hafið störf 15. ágúst n.k.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi SÍS og viðkomandi stéttafélags.
Skólaliði í Barnaskóla 80 -100% starfshlutfall
Um er að ræða 80-100% stöðu í Barnaskóla, vinnutími er frá 7:45 -15:45 (fyrir 100% starf).
Skólaliði í Hamarsskóla 50-60% starfshlutfall
Starfshlutfall er um 50-60%, vinnutími er frá: 08:00 – 13:00.
Afleysing skólaliða, tímavinna. Barna –og Hamarsskóli
Þessi staða sem um ræðir er afleysing, viðkomandi þarf að geta komið til vinnu eftir þörfum og oft með litlum fyrirvara. Afleysing getur verið bæði i Barna –og Hamarsskóla.
Starf skólaliða felst m.a í aðstoð við nemendur í leik- og grunnskóla, gæslu og þrifum á skólahúsnæði.
Helstu verkefni skólaliða:
- Skólaliði aðstoðar nemendur í leik og starfi og leiðbeinir þeim í samskiptum þeirra við aðra nemendur og starfsfólk skólans.
- Hefur umsjón með nemendum í frímínútum úti og inni, og á göngum, aðstoðar nemendur í anda Uppeldis til ábyrgðar og leiðbeinir þeim í samskiptum, reynir að sætta deilur og gætir þess að skólareglur séu virtar.
- Sinnir gangavörslu á morgnana fram að kennslu.
- Annast almenna gangavörslu og eftirlit með umgengni nemenda um skólann og meðferð þeirra á munum og búnaði í eigu.
- Aðstoðar nemendur ef með þarf við að ganga frá fatnaði sínum.
- Sér um daglega ræstingu, heldur húsnæði og lóð skólans hreinni og snyrtilegri samkvæmt vinnuskipulagi skólans.
Áhugi og reynsla á að vinna með börnum og reynsla við ræstingarstörf er kostur. Hreint sakavottorð er skilyrði.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi SÍS og Starfsmannafélags Vestmannaeyja (Stavey) eða Drífanda stéttarfélags.
Starfsmaður þarf að geta hafið störf 10. ágúst n.k.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Anna Rós Hallgrímsdóttir skólastjóri í síma 488 2202 eða í tölvupósti: annaros@grv.is
Umsókn sendist merkt viðkomandi starfi sem sótt er um.
Umsóknir skulu almennt berast með rafrænum hætti í gegnum heimasíðu Vestmannaeyjabæjar eða með tölvupósti á skólastjóra annaros@grv.is
Hvatning er til allra áhugasama einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr 150/2020.
Öllum umsóknum verður svarað þegar tekin hefur verið ákvörðun um ráðningu.
Umsóknarfrestur er til 25. maí nk.
