Goslokahátíðin 2006 verður nú haldin með hefðbundnu sniði. Sú venja hefur skapast að halda veglega upp á þessi tímamót á 5 ára fresti, næsta stórafmæli verður því 2008 á 35 ára afmælinu. Venjubundið þar á milli og miðast við afmælisdaginn 3. júlí eða þá helgi sem næst honum stendur, að þessu sinni verður hátíðin haldin helgina 7. - 9. júlí. Sjá dagskrá hér fyrir neðan
Föstudagur 7. júlí.
Kl. 17.30 Suðurhafssigling umhverfis Surtsey / ( ef veður leyfir) (Einnig spurning um að færa þetta yfir á sunnudag)
Kl. 18.00 Rústirnar af Blátindi við Heimagötu, afhjúpun skiltis um sögu hússins.
Kl. 20.00 Opnun sýningar á völdum verkum út listasafni Vestmannaeyjabæjar í Gamla áhaldahúsinu.
Þema sýningarinnar ?Klettar og úteyjar í myndlist".
Kl. 20.30 Setning sjóstangaveiðimóts á Café Drífanda
Laugardagur 8. júlí.
Kl. 07.00 Sjóstangaveiðimót SJÓVE - Allar frekari upplýsingar og skráning hjá Ellu Boggu í 481 1118 eða
4811005.
Kl. 13.30 Gengið á Heimaklett Leiðsögn Friðbjörn Valtýsson.
Menn hittast út á Eiði við rústir gamla björgunarskýlisins.
Sparisjóðsdagurinn á Baldurshagatúni og Bárustíg.
Kl. 14.00 - 16.00
*Krakkahlaup - Þrír aldurshópar, stúlkna og drengja - 8 ára og yngri, 9-10 ára og 11-12 ára.
*Golfþrautir *Grillveisla
*Götuleikhúsið *Tónlistaratriði - Dans á rósum
*Leiktæki
Kl. 17.00 Allir í Skvísusund
- Tískusýning
- Leikfélag Vestmannaeyja ....
Kl. 22. 00 Fjör í Skvísusundi fram eftir nóttu.
Félagar úr Leikfélagi Vestmannaeyja verða á svæðinu.
*Eymannafélagið *Dans á rósum *Árni Johnsen *Obbi og félagar*
Og auðvitað syngur hver með sínu nefi og þeir sem spila á gítar taka hann með í Skvísusundið.
Sunnudagur 9. júlí
Kl. 11.00 Göngumessa hefst í Landakirkju.
Þaðan verður gengið að gíg Eldfells þar sem athöfnin heldur áfram. Rúta verður fyrir þá sem ekki treysta sér til að ganga. Að messu lokinni verður haldið niður á Skans þar sem verða flutt blessunarorð og bæn. Um kl. 13.00 að aflokinni athöfninni á Skansinum verður borin fram súpa í boði sóknarnefndar Landakirkju.
Samsýning á verkum listamanna frá Vestmannaeyjum í Gamla Áhaldahúsinu söfn bæjarins opin alla helgina. Aðgangur ókeypis.
Fræðslu- og menningarsvið Vestmanneyjabæjar.