Undanfarnar vikur hefur Hellugerð Agnars og HS Vélaverk unnið að gerð göngustígs að listaverkinu The Wanderer's Perspective og nýlega búið að malbika bílastæðið. Í myndbandinu sést vel hvernig svæðið hefur tekið breytingum og hvernig aðgengi að verkinu er að taka á sig endanlega mynd.
Halldór B. Halldórsson flaug dróna yfir svæðið hjá Flakkaranum og myndaði framvindu framkvæmdanna.