Fara í efni
18.09.2026 Fréttir

Góð staða á dýpi í Landeyjahöfn

Staðan í Landeyjahöfn er góð um þessar mundir og ekki er talin þörf á umfangsmikilli dýpkun á næstunni. 

Deildu

Þetta kom fram þegar bæjarráð fór yfir stöðuna í höfninni á fundi sínum þann 16. september sl.

Nýr dýpkunarverktaki, Jan De Nul, hefur nú hafið störf og er áhöfnin að kynna sér aðstæður á svæðinu. Samkvæmt Vegagerðinni verður næsta verkefni að sinna viðhaldsdýpkun við innsiglingu og brimvarnargarða þegar aðstæður leyfa.