Fara í efni
07.09.2026 Fréttir

Góð fræðsla og vitundarvakning um heilabilun frá samtökunum Heilahjálp

Kolbrún Anna og Ragnheiður Lind eru starfsmenn hjá Vestmannaeyjabæ og eru þeirra helstu verkefni málefni sem varða aldraða í Vestmannaeyjum. 

Deildu

Kolbrún Anna er sjúkraliði að mennt og hefur starfað sem slíkur síðan 2014. Vann hún lengst af á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum og hefur hún því ómælda reynslu er varðar umönnun og aðhlynningu aldraða. Í dag starfar Kolbrún hjá Vestmannaeyjabæ sem deildarstjóri yfir stuðningsþjónustunni hjá  Vestmanneyjabæ.

Ragnheiður Lind er sjúkraliði  mennt og kláraði hún sitt nám árið 2007. Hún hefur unnið á hinum ýmsum sviðum heilbrigðisstofanna. Lengst af hefur hún starfað á sjúkrahúsinu í Vestmannaeyjum en starfar hún í dag sem deildarstjóri yfir dagdvölinni Bjargið hjá Vestmannaeyjabæ.

Kolbrún og Ragnheiður skelltu sér í fræðsluerindi frá Heilahjálp sem haldið var í Akóges.  Sú starfsemi sem heilahjálp vinnur að gefur  Kolbrúnu og Ragnheiði mikið innsýn inn í störf þeirra  þar sem hægt er að fá ráðgjöf og verkfæri er nýtist vel í vinnu þeirra. 

Kolbrún og Ragnheiður stunda nú framhaldsnám frá Háskólanum á Akureyri í Öldrun og heimahjúkrun og mun þessi fræðsla sem þær fengu á þessum fundi nýtast þeim vel bæði í nái og starfi.

Kolbrún og Ragnheiður hvetja alla þá sem ekki komust á fræðsluerindið að kynna sér Heilahjálp og slóðin er Heilahjálp - samtök um heilabilun. 

Einnig er Heilahjálp með Facebook síðu  Facebook