Nú á dögum fékk Bjargið rausnarlega gjöf frá Kvenfélaginu Landakirkju. Þær höfðu safnað fyrir skynjunartæki sem er öflugt verkfæri fyrir eldra fólk til að efla hreyfingu og skynjun hjá eldra fólki.
Tækið mun koma sér mjög vel hjá okkur á Bjarginu.
Allir á Bjarginu eru svo innilega þakklát fyrir þessa frábæru gjöf og það óeigingjarna starf sem Kvenfélagið Landakirkja gerir.
Takk fyrir okkur.



