Í dag þriðjudag er áætlað að laga gatnamót á Strandvegi, við Heiðarveg, Flatir og Garðaveg og verður einhver truflun á umferð eftir Strandvegi en einnig verður malbikað á Eiði, Goðahrauni og Hamarsvegi.
Ef allt gengur eftir verður framkvæmdum lokið á föstudag.