Fara í efni
19.05.2015 Fréttir

Garðsláttur fyrir eftirlaunaþega og öryrkja

Vestmannaeyjabær niðurgreiðir garðslátt fyrir þá eftirlaunaþega og öryrkja sem ekki geta sinn garðslætti sjálfir. Alla jafna er boðið upp á slíka þjónustu þar sem allir fullorðnir heimilismenn eru lífeyrisþegar en annars ekki. Réttur til þjónustunnar miðast við garða þeirra húsa þar sem umsækjandi hefur fasta búsetu. Lóðir við fjöleignahús tilheyra ekki þessari þjónustu nema að allir íbúar þess séu lífeyrisþegar og falla undir ofangreindar forsendur.
 
Deildu
Hámarksniðurgreiðsla fyrir sumarið er kr. 15.000 á lóð. Eftirlaunaþegar og öryrkjar velja sinn eigin þjónustuaðila, og Vestmannaeyjabær niðurgreiðir kostnaðinn. Framvísa þarf gildum kvittunum og nauðsynlegum upplýsingum í þjónustuveri Ráðhúss.