Viðkomandi þarf að vera vera metnaðarfullur, ábyrgur, áhugasamur, lipur í samskiptum og tilbúinn í öflugt samstarf, með velferð og þroska nemenda að leiðarljósi. Reynsla af vinnu með börnum æskileg. Viðkomandi þarf að hafa hreint sakavottorð. Laun miðast við tímavinnu og eru greidd samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Stavey. Umsóknarfrestur er til 12. ágúst. Umsóknareyðublöð er hægt að nálgast í afgreiðslu bæjarskrifstofa og á vestmannaeyjar.is. Umsóknum ber að skila í afgreiðslu bæjarskrifstofa eða á rafrænu formi á netfangið anton@vestmannaeyjar.is merkt “Frístundaver afleysingar”. Nánari starfslýsingu og upplýsingar má nálgast hjá: Anton Örn Björnsson, anton@vestmannaeyjar.is s: 481-2964.
30.07.2019
Frístundaverið Þórsheimilinu/Rauðagerði - afleysingar
Frístundaverið í Þórsheimilinu og eftirskólaúrræðið á Rauðagerði óska eftir starfsmönnum í tilfallandi afleysingar. Vinnutími er að jafnaði eftir hádegi á virkum dögum.