Fara í efni
27.02.2020 Fréttir

Frístundastyrkur Vestmannaeyjabæjar

Niðurgreiðsla þátttökugjalda barna 2 – 18 ára í íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi í Vestmannaeyjum / Frístundastyrkur

Deildu

Styrkurinn er að upphæð kr. 35.000 og gildir frá 1. janúar 2020 - 31.desember 2020.

Úthlutunarreglur Frístundastyrks Vestmannaeyjabæjar.

Eftirfarandi aðilar eru skráðir samstarfsaðilar við Vestmannaeyjabæ vegna frístundastyrks:

ÍBV – Íþróttafélag
Golfklúbbur Vestmannaeyja
Fimleikafélagið Rán
Tónlistarskóli Vestmannaeyja
Skátafélagið Faxi
Sundfélag Vestmannaeyja
Karatefélag Vestmannaeyja
Hugarfrelsi ehf.
Hressó – skipulögð unglinganámskeið
Peers eyjar
Sumarfjör
Frá árinu 2020 mun Vestmannaeyjabær í samstarfi við samstarfsaðila notast við rafrænt greiðslu- og skráningarkerfi (NORA frá Greiðslumiðlun) sem heldur utan um alla umsýslu frístundastyrksins. Fyrirkomulagið er með því sniði að foreldrar/forráðamenn fara inn á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar eða þess samstarfsaðila sem tilgreindur er hér að ofan þar sem skrá á barn/börn til þátttöku. Á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar eða félaganna er/verður hlekkur inná skráningarsíðu þar sem foreldrar/forráðamenn skrá iðkendur. Í lok skráningar- og greiðsluferlisins geta foreldrar/forráðamenn valið að nota frístundastyrkinn frá Vestmannaeyjabæ. Með tilkomu rafræns fyrirkomulags er hægt að skipta frístundastyrknum niður á milli félaga/deilda/námskeiða.

Bein slóð: http://vestmannaeyjar.is/is/page/fristundastyrkur