Leitum að stuðningsfjölskyldu fyrir börn með fötlun. Um er að ræða 3 sólarhringa á mánuði.
Hlutverk stuðningsfjölskyldu er að taka barn eða börn tímabundið í umsjá sína í þeim tilgangi að létta álagi af fjölskyldu þess. Við það gerast stuðningsfjölskylda léttir það ekki aðeins álagi á fjölskyldum barnanna heldur veitir það börnunum tækifæri til aukins þroska. Dvöl hjá stuðningsfjölskyldu er samningsbundin til ákveðins tíma um verktakagreiðslur er að ræða.
Umsóknareyðublað fyrir ofangreint starf liggur frammi í Þjónustuveri félagsþjónustunnar Á Rauðagerði. Umsóknarfrestur er til 31 okt. Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg í síma 488-2000 og gudbjorg@vestmannaeyjar.is
Félagsleg liðveisla – hlutastörf – sveigjanlegur vinnutími
Óskum eftir starfsfólki af báðum kynjum í félagslega liðveislu fyrir börn og fullorðna. Félagsleg liðveisla felur í sér persónulegan stuðning og aðstoð sem einkum miðar að því að rjúfa félagslega einangrun, s.s. stuðning til að stunda íþróttir/líkamsrækt, fara á menningartengda viðburði og annað félagsstarf.
Um er að ræða hlutastarf, 8-16 tímar í mánuði sem getur hentað vel sem aukastarf með námi eða öðru starfi. Einnig hægt að setja saman í stærra starfshlutfall.
Hægt er að nálgast umsóknareyðublöð í þjónustuveri félagsþjónustunnar á Rauðgerði (norðan meginn) eða á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Vestmannaeyjabæjar (STAVEY) og Launanefndar sveitarfélaga. Nánari upplýsingar veitir Lísa Njálsdóttir í síma 488-2620 eða lisa@vestmannaeyjar.is.