Kæru sundlaugagestir
Þar sem framkvæmdir á innilauginni hafa tekið lengri tíma en áætlað var, viljum við koma til móts við alla sund áskriftarkorthafa og framlengja áskriftarkort þeirra um þrjá mánuði.
Framlengingin fer sjálfkrafa fram og ættu korthafar því að taka eftir lengri gildistíma við næstu notkun.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem tafir á framkvæmdum kunna að hafa valdið.
Við hlökkum til að sjá ykkur sem fyrst aftur í sundi.
Kveðja,
Starfsfólk Íþróttamiðstöðvarinnar