Innviðaráðuneytið hefur samþykkt beiðni Vestmannaeyjabæjar á framlengingu á ríkisstyrktu áætlunarflugi fram til mánaðarmóta. Vegagerðin mun í framhaldinu hafa samband við Nordlandair um áframhaldandi flug með óbreyttu sniði, tvær ferðir á dag. En hefur Landeyjarhöfn ekki opnað fyrir fulla áætlun og því nauðsynlegt að framlengja flugið.
Með framlengingunni verður tryggt að íbúar, fyrirtæki og aðrir hafi áfram aðgang að öruggu og reglubundnu flugi.
13.05.2026
Áfram verður flogið út maí
