Staða framkvæmda:
Lokafrágangur verktaka: Áætlað er að rafvirkjar og pípulagningamenn ljúki uppsetningu í þessari viku. Í kjölfarið fer fram ítarleg prufukeyrsla á öllum búnaði til að tryggja öryggi og virkni.
Stjórnbúnaður og hugbúnaður: Í næstu viku verður tölvustýrt stjórnkerfi sett upp. Kerfið mun bera ábyrgð á sjálfvirkri stýringu á nýju hreinsikerfi og vatnsbúnaði sundlaugarinnar.
Opnun: Þegar prófunum á stjórnkerfinu er lokið verður hafist handa við að fylla laugina. Að þeirri vinnu lokinni verður hún opnuð almenningi á ný.
Við þökkum íbúum fyrir sýnda biðlund á meðan unnið er að þessum mikilvægu endurbótum.