Verkefni sem eru útistandandi og áætlað að klárist í næstu viku:
1. Stýra og lesa stöðu á mótorloka hitunar SL003
2. Niðurfallsbrunnur
a. Hleypa vatni á jöfnunartank, staðfesta hæðarlesningu og setja inn réttar hæðir, yfirfallshæð osfrv.
b. Staðfesta hæðarlesningu í niðurfallsbrunni
c. Láta hæðarrofana síga og festa á réttum stöðum
d. Láta renna í niðurfallsbrunn og prófa brunndælurnar og merki þeim tengd
e. Stilla og virkniprófa, dælustýringu, dæluskiptingu, stilla regli fyrir hæðarstýringu í tæmingu osfrv.
3. Hringrásardælur og sandsíur
a. Setja inn parametra tíðnibreyta
b. Prófa hringrásardælurnar og merki þeim tengd
c. Bakskola sandsíurnar
4. Setja sundlaug í áfyllingu
a. Stilla regli í áfyllingu og finna hversu margar dælur eiga að vera í gangi í áfyllingu
b. Prófa og hugsanlega stilla dælu til varmaskiptis DÆ-008 og að hitun sé virk
5. Þegar sundlaug er orðin full, þá er hún sett í rekstur og hægt að:
a. Prófa flæðiskynjara FT01, flæði hringrásardælingar
b. Stilla reglun hringrásarflæðis
c. Prófa klór og CO2 kerfi
d. Prófa flæðiskynjara FT02, flæði blæðingar í jöfnunartank
e. Stilla hitunarreglun þegar mótorloki þarf ekki að vera fullopinn lengur
6. Þegar sundlaug er búin að ná réttu hitastigi þá er hægt að:
a. Staðfesta hitunarreglun
b. Koma skjákerfistölvu fyrir í turni
